Velkomin(n)

Matur úr héraði – Local food er félag sem vinnur að framgangi eyfirskrar matarmenningar í víðum skilningi. Eyjafjörður er í senn vagga matvælaframleiðslu, úrvinnslu og matreiðslu. Við höfum að markmiði að auka hróður eyfirskrar matarmenningar sem víðast um heiminn. 

Nýjustu fréttir

  • Fjölbreytt sýning

    maturinn_2009_logo72Óhætt er að segja að sýningin MATUR-INN 2009 sé fjölbreytt. Allt fram á síðasta dag hefur verið að bætast við í þátttakendahópinn og koma á fimmta tug aðilar við sögu á sýningarsvæðinu, bæði í sýningarbásum, á markaðnum, á vínkynningasvæðinu og í anddyri íþróttahallarinnar. Þar geta gestir skoðað skemmtilega muni frá Iðnaðarsafninu á Akureyri þar sem þemað verður matvælavinnsla í bænum. Hver veit nema þar birtist gamlir kunningjar af matborðum Norðlendinga! Sömuleiðis verður Erlendur Guðmundsson, kafari, með ljósmyndasýningu úr djúpunum. En þungamiðjan verður auðvitað sýningarsalurinn með mikla fjölbreytni í mat og drykk. Lesa meira

  • Frumkvöðlaverðlaun Matar úr Eyjafirði afhent á sunnudag

    maturinn_2009_logo72Á sunnudag kl. 16 verður tilkynnt um frumkvöðlaverðlaun félagsins Matur úr Eyjafirði - local food. Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt. Fyrstu viðurkenninguna fékk fengu Friðrik V. Karlsson og fjölskylda á veitingastaðnum Friðriki V. Viðurkenningin var veitt í annað sinn á sýningunni MATUR-INN 2007 og varð Ektafiskur þá fyrir valinu. Og nú er komið að þriðju afhendingunni.

  • Frá hvaða svæði kemur besta fiskisúpan?

    maturinn_2009_logo72Ein af keppnunum á sýningunni verður fiskisúpugerð. Hér er um að ræða keppni þar sem svæðafélögin þrjú, Matur úr Eyjafirði, Matarkistan Skagafjörður og Þingeyska matarbúrið tilnefna sína fulltrúa. Og þá fæst svar við því hvar á Norðurlandi besta fiskisúpan er elduð! Keppnin fer fram kl. 14:30 á sunnudag. 

    Lesa meira

  • Þjóðþekktir keppa í matreiðslu

    maturinn_2009_logo72Á sýningunni MATUR-INN 2007 vakti matreiðslukeppni þjóðþekktra mikla athygli gesta. Sá liður verður að sjálfsögðu endurtekinn nú og verða keppendur fjórir. Keppnin hefst með kynningu keppenda kl. 13.15 á laugardag. Keppendur eru: Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri og Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur. Lesa meira

  • Málþing um íslenskan mat

    maturinn_2009_logo72Samhliða sýningunni MATUR-INN 2009 verður haldið málþing um íslenskan mat undir yfirskriftinni „Íslenskur matur fyrr og nú". Markmiðið með málþinginu er að efla umræðu um íslenskan mat og matarhefðir, jafnt meðal fagfólks sem almennings. Ekki aðeins er matvælaframleiðsla ein grundvallaratvinnugrein landsmanna heldur leikur matur stórt hlutverk í ferðaþjónustu, sögu- og menningu, fræðslu- og skólastarfi og þannig mætti áfram telja. Með aukinni umræðu aðila, samvinnu, rannsóknum og markmiðssetningu má vafalítið skerpa sýn á möguleika í framtíðinni með þróun matvælaframleiðslu og matar-menningar. Málþingið er innlegg í þá vegferð.

    Lesa meira

  • Fjölbreytt dagskrá á MATUR-INN 2009

    maturinn_2009_logo72Ýmsar skemmtilegar uppákomur verða á sýningarsvæðinu báða dagana. Meðal hápunkta má nefna málþing um íslenskan mat, matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga, borgarakeppni og fiskisúpukeppni. Lesa meira

  • Búist við þúsundum gesta í Íþróttahöllina

    maturinn_2009_logo72Sýningin MATUR-INN verður haldin á Akureyri í fjórða sinn um komandi helgi. Sýningin hefur verið haldin á tveggja ára fresti og verið fram að þessu í Verksmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa þyrfti viðburðinn í stærra hús, enda gestafjöldinn yfir 10 þúsund! Því verður sýningin nú á 800 fermetra svæði í Íþróttahöllinni á Akureyri.

    Lesa meira

  • Skráning í borgarakeppnina á MATUR-INN 2009

    maturinn_2009_logo72Viltu slá í gegn með borgaranum þínum? Gerir þú besta borgarann norðan heiða? Nú gefst tækifæri til að koma með snillina í borgaragerð að heiman og keppa um besta borgarann á Norðurlandi 2009 á sýningunni MATUR-INN 2009. Aðeins 16 keppendur - vegleg verðlaun! Skráningar sendist sýningarstjórn á netfangið johann@athygli.is.

    Lesa meira

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning