Matur úr héraði – Local food er félag sem vinnur að framgangi eyfirskrar matarmenningar í víðum skilningi. Eyjafjörður er í senn vagga matvælaframleiðslu, úrvinnslu og matreiðslu. Við höfum að markmiði að auka hróður eyfirskrar matarmenningar sem víðast um heiminn.
Flýtilyklar
Velkomin(n)
Nýjustu fréttir
-
Aðalfundur Matar úr Eyjafirði
Almennt - miðvikudagur 2.jún.10 12:56 - Lestrar 179Aðalfundur Matar úr Eyjafirði var haldinn síðastliðinn fimmtudag. Í máli Ingvars Gíslasonar stjórnarmanns í félaginu kom fram að síðastliðið starfsár hafi verið félaginu mjög farsælt. Hagnaður var af rekstri félagsins en það stóð fyrir mörgum viðburðum á árinu 2009. Sá stærsti var sýningin Matur-Inn 2009 sem vakti mikla athygli um allt land og 12-14 þúsund gestir kynntu sér þar matarhefðir og framleiðslu fyriortækja á Norðurlandi. Lesa meira
-
Fjölbreytt sýning
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 22:35 - Lestrar 575
Óhætt er að segja að sýningin MATUR-INN 2009 sé fjölbreytt. Allt fram á síðasta dag hefur verið að bætast við í þátttakendahópinn og koma á fimmta tug aðilar við sögu á sýningarsvæðinu, bæði í sýningarbásum, á markaðnum, á vínkynningasvæðinu og í anddyri íþróttahallarinnar. Þar geta gestir skoðað skemmtilega muni frá Iðnaðarsafninu á Akureyri þar sem þemað verður matvælavinnsla í bænum. Hver veit nema þar birtist gamlir kunningjar af matborðum Norðlendinga! Sömuleiðis verður Erlendur Guðmundsson, kafari, með ljósmyndasýningu úr djúpunum. En þungamiðjan verður auðvitað sýningarsalurinn með mikla fjölbreytni í mat og drykk.
Lesa meira
-
Frumkvöðlaverðlaun Matar úr Eyjafirði afhent á sunnudag
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 22:29 - Lestrar 456
Á sunnudag kl. 16 verður tilkynnt um frumkvöðlaverðlaun félagsins Matur úr Eyjafirði - local food. Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt. Fyrstu viðurkenninguna fékk fengu Friðrik V. Karlsson og fjölskylda á veitingastaðnum Friðriki V. Viðurkenningin var veitt í annað sinn á sýningunni MATUR-INN 2007 og varð Ektafiskur þá fyrir valinu. Og nú er komið að þriðju afhendingunni.
-
Frá hvaða svæði kemur besta fiskisúpan?
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:57 - Lestrar 470
Lesa meira
Ein af keppnunum á sýningunni verður fiskisúpugerð. Hér er um að ræða keppni þar sem svæðafélögin þrjú, Matur úr Eyjafirði, Matarkistan Skagafjörður og Þingeyska matarbúrið tilnefna sína fulltrúa. Og þá fæst svar við því hvar á Norðurlandi besta fiskisúpan er elduð! Keppnin fer fram kl. 14:30 á sunnudag.
-
Þjóðþekktir keppa í matreiðslu
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:47 - Lestrar 498
Á sýningunni MATUR-INN 2007 vakti matreiðslukeppni þjóðþekktra mikla athygli gesta. Sá liður verður að sjálfsögðu endurtekinn nú og verða keppendur fjórir. Keppnin hefst með kynningu keppenda kl. 13.15 á laugardag. Keppendur eru: Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri og Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur.
Lesa meira
-
Málþing um íslenskan mat
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:41 - Lestrar 443
Lesa meira
Samhliða sýningunni MATUR-INN 2009 verður haldið
málþing um íslenskan mat undir yfirskriftinni „Íslenskur matur fyrr og nú".
Markmiðið með málþinginu er að efla umræðu um íslenskan mat og matarhefðir,
jafnt meðal fagfólks sem almennings. Ekki aðeins er matvælaframleiðsla ein
grundvallaratvinnugrein landsmanna heldur leikur matur stórt hlutverk í ferðaþjónustu,
sögu- og menningu, fræðslu- og skólastarfi og þannig mætti áfram telja. Með
aukinni umræðu aðila, samvinnu, rannsóknum og markmiðssetningu má vafalítið
skerpa sýn á möguleika í framtíðinni með þróun matvælaframleiðslu og
matar-menningar. Málþingið er innlegg í þá vegferð.
-
Fjölbreytt dagskrá á MATUR-INN 2009
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:31 - Lestrar 481
Ýmsar skemmtilegar uppákomur verða á sýningarsvæðinu báða dagana. Meðal hápunkta má nefna málþing um íslenskan mat, matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga, borgarakeppni og fiskisúpukeppni.
Lesa meira
-
Búist við þúsundum gesta í Íþróttahöllina
Almennt - miðvikudagur 30.sep.09 15:16 - Lestrar 493
Lesa meira
Sýningin
MATUR-INN verður haldin á Akureyri í fjórða sinn um komandi helgi. Sýningin
hefur verið haldin á tveggja ára fresti og verið fram að þessu í
Verksmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa
þyrfti viðburðinn í stærra hús, enda gestafjöldinn yfir 10 þúsund! Því verður
sýningin nú á 800 fermetra svæði í Íþróttahöllinni á Akureyri.

