Aðsóknarmet slegið á sýningunni MATUR-INN 2011
Lesa meira
Sýningin MATUR-INN 2011 væri ekki framkvæmanleg án stuðningsaðila, enda viðburðurinn nokkuð stór og umfangsmikill. Auk þess hefur verið lögð rík áhersla á að aðgangur sé ókeypis og sem flestir geti notið. Að þessu sinni hafa eftirtaldir aðilar lagt verkefninu fjárhagslegt lið og kunna aðstandendur sýningarinnar þeim miklar þakkir. Þessir aðilar eru - í stafrófsröð:
Akureyrastofa
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Félag eyfirskra kúabænda
Samtök iðnaðarins
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Svínaræktarfélag Íslands
Landssamband kúabænda
Landssamtök sauðfjárbænda
Markaðsstofa ferðamála á Norðurlandi
Klúbbur matreiðslumeistara - Norðurland hefur með höndum skemmtilega viðburði í eldhúsi sýningarinnar. Segja má að þar blandist saman keppnir fagfólks og leikmanna en jafnan vekur matreiðsla mikinn áhuga sýningargesta. Enda má alltaf læra ný handtök og nýja rétti. Og hafa gaman af. Sá er einmitt tilgangurinn.
Eins og sjá má á dagskránni hér að neðan munu þjóðþekktir einstaklingar spreyta sig í matreiðslu á lax og bæði matreiðslumenn og bakarar sýna snilli sína. Og svo fæst svarið við því hver gerir bestu flatbökuna!