Aðalfundur Matar úr Eyjafirði
Aðalfundur Matar úr Eyjafirði var haldinn síðastliðinn fimmtudag. Í máli Ingvars Gíslasonar stjórnarmanns í félaginu kom fram að síðastliðið starfsár hafi verið félaginu mjög farsælt. Hagnaður var af rekstri félagsins en það stóð fyrir mörgum viðburðum á árinu 2009. Sá stærsti var sýningin Matur-Inn 2009 sem vakti mikla athygli um allt land og 12-14 þúsund gestir kynntu sér þar matarhefðir og framleiðslu fyriortækja á Norðurlandi.
Þá kom fram á fundinum að framtíð félagsins væri óljós en til stæði að finna því farveg hjá aðilum eins og Akureyrarstofu en viðræður um það standa nú yfir.
Ný stjórn var skipuð, í henni sitja Ingvar Gíslason, Arinbjörn Þórarinsson og Hanna Dögg Maronsdóttir.
Fráfarandi stjórn er þakkað fyrir vel unnin störf.

