Fréttir

Ágúst sigraði í matreiðslukeppni þjóðþekktra

agust_72Á sunnudag vakti matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga mikla athygli sýningargesta. Þátttakendur voru þau Kristján Möller, samgönguráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri LA, Ágúst Ólafsson, forstöðumaður RÚV Akureyri og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital. Þau fengu það verkefni að elda veislumat fyrir fjóra úr nautalund og ýmsu öðru hráefni og eftir harða keppni stóð Ágúst Ólafsson uppi sem sigurvegari.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning