Átta veitingastaðir glíma við hráefni úr héraði
Almennt - miðvikudagur 28.sep.11 18:35 - Lestrar 203
Í tilefni af sýningunni MATUR-INN 2011 var leitað til veitingastaða á Akureyri um að bjóða þessa vikuna upp á matseðil þar sem þeir útfærðu, hver á sinn hátt, hráefni sem tengist Eyjafirði. Þessari hugmynd var tekið af miklum áhuga og átta veitingastaðir bjóða í vikunni og fram á helgina upp á þennan matseðil. Veitingahúsin sem um ræðir eru Greifinn, Strikið, Rub23, Laxdalshús, Goya, Hótel Kea, Örkin hans nóa og 1862 Nordic Bistro.
Akureyringar, Norðlendingar og gestir svæðisins eru hvattir til að nýta sér þessa skemmtilegu nýjung í veitingamennskunni á Akureyri - enda norðlensk matreiðsla eins og hún gerist best.
Hráefnislistinn sem veitingahúsin unnu úr er þannig:
Fiskur: Þorskhnakki
Kjöt: Lambaskanki
Mjólkurvarar: Mysingur
Korn: Bjór
Grænmeti: Paprika/Gulrætur

