Búist við þúsundum gesta í Íþróttahöllina
Sýningin
MATUR-INN verður haldin á Akureyri í fjórða sinn um komandi helgi. Sýningin
hefur verið haldin á tveggja ára fresti og verið fram að þessu í
Verksmenntaskólanum á Akureyri en ljóst var eftir sýninguna árið 2007 að færa
þyrfti viðburðinn í stærra hús, enda gestafjöldinn yfir 10 þúsund! Því verður
sýningin nú á 800 fermetra svæði í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Óhætt er að
segja að MATUR-INN 2009 sé hápunktur í norðlenskri matarmenningu. Sýningin er
haldin af félaginu Mat úr Eyjafirði í góðu samstarfi við Þingeyska matarbúrið
og Matarkistuna Skagafjörð. Að baki þessum félögum standa matvælaframleiðendur
stórir sem smáir, veitingaaðilar, ferðaþjónustufyrirtæki, verslanir- og
þjónustufyrirtæki - allt aðilar sem eiga það sammerkt að matur kemur við sögu í
þeirra starfi. Á fimmta tug aðila tekur þátt í sýningunni MATUR-INN 2009 og
verður fjölbreytni mikil.
Á sýningunni
verða sýningarbásar fyrirtækja og matarmenningarfélaga, markaðstorg þar sem
t.d. hægt verður að kaupa ferska haustuppskeru, kjötiðn verður sýnd, keppt
verður í fiskisúpugerð, borgaragerð og síðast en ekki síst munu þjóðþekktir
einstaklingar reyna með sér í matreiðslu. Gestir sýningarinnar mega vænta þess
að fá ýmislegt gott að smakka í mat og drykk en ekki síður að geta gert góð
kaup hjá sýnendum. Athygli er vakin á að keppnin í borgaragerð er öllum opin og
upplýsingar um skráningu að finna á síðunni www.localfood.is.
Málþing um
íslenskan mat verður kl. 13 á laugardag, samhliða sýningunni. Markmiðið með málþinginu
er að efla umræðu um íslenskan mat og matarhefðir, jafnt meðal fagfólks sem
almennings. Fyrirlesarar á málþinginu verða Laufey Haraldsdóttir, lektor við
ferðamáladeild Háskólans á Hólum, Guðmundur Heiðar Gunnarsson, verkefnastjóri
nýsköpunar og neytenda hjá Matís á Höfn í Hornafirði, Guðmundur Guðmundsson,
matreiðslumeistari í Hótel- og veitingaskólanum í Kópavogi og Nanna Rögnvaldardóttir,
matreiðslubókarhöfundur. Málþingið er öllum opið.
Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun opna sýninguna MATURINN
2009 formlega í hádeginu á laugardag en sýningin verður opin verður kl. 11 til 17 báða dagana. Og
eins og áður segir er aðgangur ókeypis.

