Dagskrá og Workshop á MATUR-INN 2007
Sýningin verður opin kl. 11 - 17 báða dagana.
Dagskrá á sýningarsvæðinu
Kynnar sýningarinnar, Gestur Einar Jónasson og Margrét Blöndal, stýra ásamt fleirum skemmtilegum viðburðum á sviði Gryfjunnar:
Laugardagur
Kl. 11:00 Sýningin opnuð.
Kl. 14:00 Formleg opnun MATUR-INN 2007. Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytur ávarp og heilsar upp á sýnendur.
Kl. 14:45 Keppni í samlokugerð.
Kl. 15:30 Keppni kjötiðnaðarnema.
Kl. 16:00 Úrslit í keppninni „Matreiðslumaður ársins 2007" tilkynnt.
Sunnudagur
Kl. 14:00 Matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga. Þátttakendur: Ágúst Ólafsson, forstöðumaður RÚV Akureyri, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Kristján L. Möller, samgönguráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri og Magnús Geir Þórðarsson, leikhússtjóri LA.
Kl. 16:45 Frumkvöðlaverðlaun Matar úr héraði - Local Food afhent.
Fræðslustofur (workshop)
Báða sýningardagana verða fræðslustofur (workshop) á vegum matreiðslumannsins Friðriks V. Karlssonar og fleiri aðila um fjöldamargt sem viðkemur mat, víni og fleiri þáttum matarmenningar.
Hvernig á að meðhöndla hráefnið? Hvernig á að matreiða? Hvað á að drekka með veisluréttinum?
Takmarkaður fjöldi í hverja fræðslustofu. Skráning í upplýsingum við inngang.
Laugardagur
Kl. 12:00 Hvernig á að koma elskunni á óvart? Draumaréttur sem snertir hjartað.
Fyrirlesari: Júlíus Júlíusson, áhugamaður um matseld
Kl. 13:00 Saltfiskur; veiðar, verkun, vinnsla og matreiðsla. Hvað á að drekka með saltfiski?
Fyrirlesarar: Elvar Reykjalín, Ektafiski, Haraldur Halldórsson, vínsérfræðingur og Friðrik V.
Kl. 13:45 Vínfræðsla frá Vínklúbbi Akureyrar
Grunnþrúgur: Að læra að blindsmakka helstu þrúgur
Kl. 14:15 Bláskel; ræktun, matreiðsla og drykkir með.
Fyrirlesarar: Víðir Björnsson frá Norðurskel, Haraldur Halldórsson, vínsérfræðingur
og Friðrik V.
Kl. 15:15 Eyfirskir matsveppir, verkun þeirra, meðhöndlun og matseld
Fyrirlesari: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Kl. 16:00 Vínfræðsla frá Vínklúbbi Akureyrar
Grunnþrúgur: Að læra að blindsmakka helstu þrúgur
Kl. 16:15 Val á réttu víni með jólamatnum, ásamt gagnlegum upplýsingum fyrir vínáhugamenn.
Fyrirlesarar: Haraldur Halldórsson, vínsérfræðingur og Friðrik V.
Sunnudagur
Kl. 13:00 Hvernig á að koma elskunni á óvart? Draumaréttur sem snertir hjartað.
Fyrirlesari: Júlíus Júlíusson, áhugamaður um matseld
Kl. 13:00 Hvað er skyr? Hvernig á að elda það? Og hvað á að drekka með?
Fyrirlesarar frá MS Akureyri, Haraldur Halldórsson, vínsérfræðingur og Friðrik V.
Kl. 14:15 Reykt matvæli, verkun, vinnsla, matreiðsla og drykkir með Fyrirlesari frá Norðlenska Haraldur Halldórsson vínsérfræðingur og Friðrik V.
Kl. 15:15 Vínfræðsla frá Vínklúbbi Akureyrar
Grunnþrúgur: Að læra að blindsmakka helstu þrúgur
Kl. 16:15 Val á réttu víni með jólamatnum, ásamt gagnlegum upplýsingum fyrir vínáhugamenn.
Fyrirlesarar: Haraldur Halldórsson, vínsérfræðingur og Friðrik V.
*****
Uppboð verður á matarkörfum báða sýningardagana til styrktar Hetjunum, félagi aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi.

