Fréttir

Einar Kr. Guðfinnsson heiðursgestur á opnunardeginum

Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, verður heiðursgestur við opnun sýningairnnar MATURINN 2007 en ráðuneytin munu styðja sýninguna. Félagið Matur úr héraði kann þeim bestu þakkir fyrir velviljann.  Eins og sjá má af sýnendalistanum hér á heimasíðunni leika fiskur og kjöt stórt hlutverk á sýningarsvæðinu og eflaust verða margir gestir fyrir hreinu áreiti á bragðlaukana!  Og ekki má svo gleyma matarlistinni en fremstir í þeim flokki fara að sjálfsögðu bestu matreiðslumenn landsins sem útkljá á sýningarsvæðinu baráttuna um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning