Styrkur úr Vaxtarsamningi Eyjafjarðar
Félagið Matur úr héraði - local food fékk í dag þriggja milljóna króna
styrk úr fyrstu úthlutun Vaxtarsamnings Eyjafjarðar á þessu ári. Alls
fengu 10 verkefni framlög úr Vaxtarsamningnum, samtals að fjárhæð
tæplega 18 milljónir króna.
Þau verkefni sem Vaxtarsamningurinn samþykkti í dag að taka þátt í eru:
Akureyrarstofa Komdu norður 1.000.000
Pharmarctica ehf. Nýjungar í lyfjaframleiðslu 2.000.000
Draumasetrið Skuggsjá Draumar í Eyjafirði 750.000
Hlíðarfjall ehf. Svifbraut 2.000.000
Formula Iceland ehf. Motorgames.eu 2.000.000
Stöng – sumarhús ehf. Haust- og vetrarveiðiferðir 1.000.000
Sounds ehf. Valhalla Studio 2.000.000
Norðanflug ehf. Norðanflug ehf. 2.000.000
Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi Beint flug 2.000.000
Matur úr héraði – Local food til starfs félagsins 3.000.000
Samtals 17.750.000

