Fréttir

Fjölbreytt dagskrá á MATUR-INN 2009

maturinn_2009_logo72Ýmsar skemmtilegar uppákomur verða á sýningarsvæðinu báða dagana. Meðal hápunkta má nefna málþing um íslenskan mat, matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga, borgarakeppni og fiskisúpukeppni.

Dagskrá á sýningarsvæðinu:

Laugardagur
kl. 11.oo Sýning opnar
kl. 12.15 Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra
opnar sýninguna formlega.
kl. 12.30 Fyrsti hluti í borgarakeppni
kl. 13.00 Málþing um íslenskan mat
Framsöguerindi: Laufey Haraldsdóttir, lektor við ferðamáladeild
Háskólans á Hólum, Guðmundur Heiðar Gunnarsson, verkefnastjóri nýsköpunar og neytenda hjá Matís á Höfn í Hornafirði, Guðmundur Guðmundsson, matreiðslumeistari í Hótel- og veitingaskólanum
í Kópavogi, Nanna Rögnvaldardóttir, matreiðslubókarhöfundur.
Málþingsstjóri: Friðrik Valur Karlsson, veitingamaður á Akureyri,
stjórnarmaður í félaginu Mat úr Eyjafirði og fulltrúi
í veitinganefnd Samtaka aðila í ferðaþjónustu
kl. 13.30 Þekktir einstaklingar keppa í matreiðslu.
Keppendur verða Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri og Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur.
kl. 16.15 Annar hluti í borgarakeppni

Sunnudagur
kl. 11.00 Sýning opnar
kl. 12.30 Þriðji hluti borgarakeppni
kl. 13.30 Kjötiðnaðarmenn sýna úrbeiningu og vinnslu. Afurðir boðnar upp.
kl. 14.30 Norðurlandskeppni í fiskisúpugerð
kl. 15.30 Fjórði hluti borgarakeppni
kl. 16.00 Úrslit í fiskisúpukeppni og borgarakeppni tilkynnt.
Frumkvöðlaverðlaun Matar úr Eyjafirði - local food afhent
kl. 17.00 Sýningarlok



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning