Fréttir

Fjölbreytt sýning

maturinn_2009_logo72Óhætt er að segja að sýningin MATUR-INN 2009 sé fjölbreytt. Allt fram á síðasta dag hefur verið að bætast við í þátttakendahópinn og koma á fimmta tug aðilar við sögu á sýningarsvæðinu, bæði í sýningarbásum, á markaðnum, á vínkynningasvæðinu og í anddyri íþróttahallarinnar. Þar geta gestir skoðað skemmtilega muni frá Iðnaðarsafninu á Akureyri þar sem þemað verður matvælavinnsla í bænum. Hver veit nema þar birtist gamlir kunningjar af matborðum Norðlendinga! Sömuleiðis verður Erlendur Guðmundsson, kafari, með ljósmyndasýningu úr djúpunum. En þungamiðjan verður auðvitað sýningarsalurinn með mikla fjölbreytni í mat og drykk.

Þátttakendalistinn er þannig:

Nýja kaffibrennslan
Iðnaðarsafnið á Akureyri
Ektafiskur
Bruggsmiðjan
Mjólkursamsalan
Laufabrauðssetrið
Darri - Eyjabiti
Matís
Bautinn
Heimur hafsins
Mekka
Vífilfell
Bruggsmiðjan
Kartöflubændur Áshóli
Friðrik V
Purity Herbs
Júlíus Júlíusson
Brynja
Norðurskel
Laugamýri - Skagafirði
Hofsstaðasel - Skagafirði
Húðlausn
Kristjánsbakarí
Garðyrkjustöðin Brúnalaug
Norðlenska
Reykjagulrætur
Strikið
Friðrik V - delicatessen
Kjarnafæði
Urtasmiðjan
Eymundsson
Erlendur Guðmundsson

MATARKISTAN  SKAGAFJÖRÐUR:
Fisk Seafood
Rækjuvinnslan Dögun
Sauðárkróksbakarí
Mjólkursamlag KS
Hótel Varmahlíð
Ólafshús
Ferðaþjónustan á Hólum
Skagfirskur matur ehf.

ÞINGEYSKA MATARBÚRIÐ:
Viðbót
Reykkofinn Hellu
Sólveig Pé
Guðrún frá Mýri

 MYND AF GÓLFPLANI SÝNINGARINNAR - SMELLIÐ HÉR



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning