Frá hvaða svæði kemur besta fiskisúpan?
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:57 - Lestrar 189
Ein af keppnunum á sýningunni verður fiskisúpugerð. Hér er um að ræða keppni þar sem svæðafélögin þrjú, Matur úr Eyjafirði, Matarkistan Skagafjörður og Þingeyska matarbúrið tilnefna sína fulltrúa. Og þá fæst svar við því hvar á Norðurlandi besta fiskisúpan er elduð! Keppnin fer fram kl. 14:30 á sunnudag.
Fimm dómarar skera úr um úrslit í þessari keppni, þ.e. einn fulltrúi hvers landsvæðis og tveir aukadómarar.
Vægi dóma:
eldamennska og vinnubrögð 15%
samsetning 30%
frumleiki 15%
útlit og áferð 10%
bragð 30%

