Frumkvöðlaverðlaun Matar úr Eyjafirði afhent á sunnudag
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 22:29 - Lestrar 177
Á sunnudag kl. 16 verður tilkynnt um frumkvöðlaverðlaun félagsins Matur úr Eyjafirði - local food. Þetta er í þriðja sinn sem viðurkenningin er veitt. Fyrstu viðurkenninguna fékk fengu Friðrik V. Karlsson og fjölskylda á veitingastaðnum Friðriki V. Viðurkenningin var veitt í annað sinn á sýningunni MATUR-INN 2007 og varð Ektafiskur þá fyrir valinu. Og nú er komið að þriðju afhendingunni.

