Skemmtileg dagskrá í keppniseldhúsinu
Klúbbur matreiðslumeistara - Norðurland hefur með höndum skemmtilega viðburði í eldhúsi sýningarinnar. Segja má að þar blandist saman keppnir fagfólks og leikmanna en jafnan vekur matreiðsla mikinn áhuga sýningargesta. Enda má alltaf læra ný handtök og nýja rétti. Og hafa gaman af. Sá er einmitt tilgangurinn.
Eins og sjá má á dagskránni hér að neðan munu þjóðþekktir einstaklingar spreyta sig í matreiðslu á lax og bæði matreiðslumenn og bakarar sýna snilli sína. Og svo fæst svarið við því hver gerir bestu flatbökuna!
Dagskrá sýningarinnar er sem hér segir:
Laugardagur 1. október
Kl. 11 - Sýningin opnar
kl. 11:30 - Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, opnar sýninguna formlega
kl. 13-14 - Matreiðslumenn keppa um besta makrílréttinn
kl. 15 - Þjóðþekktir einstaklingar keppa í matreiðslu á laxi
kl. 17 - Sýningin lokar
Sunnudagur 2. október
kl 11 - Sýningin opnar
kl. 13 - Bakarar keppa í eftirréttagerð
kl. 14 - Flatbökukeppni veitingastaðanna
kl. 15 - Uppboð á varningi frá sýnendum - ágóði rennur til Hetjanna - aðstandendafélags langveikra barna á Norðurlandi
kl. 15:30 - Frumkvöðlaverðlaun félagsins Matar úr héraði veitt.
kl. 17 - Sýningin lokar

