Fréttir

Jón Þór sigraði í keppni kjötiðnaðarnema

jon_thor_kjotidn72Á laugardag fór fram keppni nema í kjötiðn á MATUR-INN 2007 og fékk hver keppandi um sig það verkefni að vinna úr einum lambsskrokk. Sigurvegari varð Jón Þór Guðmundsson, nemi hjá Kjarnafæði á Akureyri. Að keppninni lokinni var hráefnið boðið upp og nam hæsta boð í kjöt sigurvegarans 20 þúsund krónum. Ágóðinn af uppboðinu rann til Hetjanna, félags aðstandenda langveikra barna á Norðurlandi.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning