Fréttir

Málþing um íslenskan mat

maturinn_2009_logo72Samhliða sýningunni MATUR-INN 2009 verður haldið málþing um íslenskan mat undir yfirskriftinni „Íslenskur matur fyrr og nú". Markmiðið með málþinginu er að efla umræðu um íslenskan mat og matarhefðir, jafnt meðal fagfólks sem almennings. Ekki aðeins er matvælaframleiðsla ein grundvallaratvinnugrein landsmanna heldur leikur matur stórt hlutverk í ferðaþjónustu, sögu- og menningu, fræðslu- og skólastarfi og þannig mætti áfram telja. Með aukinni umræðu aðila, samvinnu, rannsóknum og markmiðssetningu má vafalítið skerpa sýn á möguleika í framtíðinni með þróun matvælaframleiðslu og matar-menningar. Málþingið er innlegg í þá vegferð.

Málþingið verður laugardaginn 3. október kl. 13 á 2. hæð  í Íþróttahöllinni á Akureyri og er öllum opið. Málþingið er styrkt af Menningarráði Eyþings. 

Fyrirlesarar eru:
Laufey Haraldsdóttir, lektor við ferðamáladeild Háskólans á Hólum
Guðmundur Heiðar Gunnarsson, verkefnastjóri nýsköpunar og neytenda hjá Matís á Höfn í Hornafirði
Guðmundur Guðmundsson, matreiðslumeistari í Hótel- og veitingaskólanum í Kópavogi
Nanna Rögnvaldardóttir, matreiðslubókarhöfundur

Málþingsstjóri:
Friðrik Valur Karlsson, veitingamaður á Akureyri, stjórnarmaður í félaginu Mat úr Eyjafirði og fulltrúi í veitinganefnd Samtaka aðila í ferðaþjónustu.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning