Mikil ánægja sýnenda
Sýnendur á MATUR-INN 2007 voru boðaðir til fundar með forsvarsmönnum félagsins Matur úr héraði á veitingahúsinu Friðriki V síðastliðinn fimmtudag til að ræða sýninguna og hugmyndir um framhaldið. Mjög vel var mætt og mikil ánægja ríkjandi með hvernig til tókst á sýningunni. Sýningin hefur verið haldin annað hvert ár og kom fram á fundinum að stefnt væri að sýningu á ný árið 2009 en þau sjónarmið komu einnig fram að svo vel hafi tekist til nú að full ástæða væri til að efna til sýningar aftur að ári.
Nokkuð var á fundinum rætt um framtíðarhúsnæði fyrir sýninguna en ljóst er að miðað við þátttöku sýnenda og ekki síður aðsókn almennings, þá verður horft til þess að færa sýninguna í stærra húsnæði. Huga verður þó að ýmsum framkvæmdaþáttum sýningarinnar svo sem eldhúsaðstöðu í tengslum við val á húsnæði.
Að fundinum loknum var sýnendum boðið upp á ýmsa girnilega rétti að hætti Friðriks V. Að sjálfsögðu unnum úr mat úr héraði!

