Skráning á sýninguna MATUR-INN 2009 stendur yfir
Viðburður sem draga mun að sér þúsundir gesta
Líkt og áður er lagt upp úr því að sýningin verði í senn
fjölbreytt og hápunktur í norðlenskri matarmenningu. Í boði verða sýningarsvæði
fyrir fyrirtæki og félagasamtök, markaðssvæði verður einnig þar sem kjörið er
að selja haustuppskeruna eða hvað annað sem tengist mat og matarmenningu. Á
sýningarsvæðinu verða einnig skemmtilegar keppnir sem gestir geta fylgst með og
loks verður haldið málþing um íslenskan mat í tengslum við sýninguna. Í senn verður
því um að ræða fróðleik og skemmtun sem vafalítið mun draga að sér þúsundir
gesta. Aðgangur að sýningunni verður ókeypis.
Lögð er áhersla á að sem flest fyrirtæki sem tengjast matarmenningu taki þátt og er markmið aðstandenda sýningarinnar að halda áfram þar sem frá var horfið á vel lukkaðri sýningu 2007, sýna og sanna hversu stórt hlutverk matvælin leika á Norðurlandi, allt frá framleiðslu og vinnslu til mat- og framreiðslu.
Mikilvægt að skrá þátttöku sem fyrst
Eins og áður segir
verður sýningin á laugardegi og sunnudegi, 3. og 4. október. Sýningin
verður opin báða dagana kl. 11-17.
Sýningarkerfi verður uppsett og gólf teppalagt. Fermetraverð í básum er 8.500 kr. fyrir félaga í Mat úr héraði og 12.500 fyrir aðra. Innifalið í því er sýningarkerfi og lýsing. Hægt verður að leigja aukahluti frá leigjanda sýningarkerfis, sem og aukatengingu á rafmagni. Hægt verður einnig að kaupa aðgang að nettengingu á sýningarsvæðinu.
Á markaðstorgi verður aðstaða við söluborð en að öðru leyti sjá aðilar sjálfir um sína aðstöðu. Gjald fyrir aðila er 10.000 fyrir alla helgina. Undirstrikað er að aðilar á markaðnum þurfa að uppfylla öll skilyrði sem heilbrigðiseftirlit gerir til sölu af þessu tagi.
Sýningarstjórn skipa Friðrik V. Karlsson og Ingvar Gíslason, stjórnarmenn í félaginu Mat úr Eyjafirði. Auk þeirra Jóhann Ólafur Halldórsson hjá Athygli sem tekur á móti skráningum og veitir upplýsingar sem sýningarhaldið varðar.
Skráningar fyrir þátttöku í sýningunni þurfa að berast á tölvupósti á netfangið johann@athygli. is fyrir miðvikudaginn 16. september með óskum um áætlað rými. Símar hjá Jóhanni Ólafi eru 899-9865 / 515-5220.

