Fréttir

Skráning í borgarakeppnina á MATUR-INN 2009

maturinn_2009_logo72Viltu slá í gegn með borgaranum þínum? Gerir þú besta borgarann norðan heiða? Nú gefst tækifæri til að koma með snillina í borgaragerð að heiman og keppa um besta borgarann á Norðurlandi 2009 á sýningunni MATUR-INN 2009. Aðeins 16 keppendur - vegleg verðlaun! Skráningar sendist sýningarstjórn á netfangið johann@athygli.is.

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppandi kemur með allt hráefni, hefur 30 mín til að elda einn borgara. Öll helstu eldunartæki og áhöld eru á staðnum. Borgarinn þarf að innihalda prótein (kjöt, fisk, fugl, soya), grænmeti, mjólkurvörur og kornvörur (brauðmeti).
Þrír dómarar dæma og vægi dóma er þannig:
eldamennska og vinnubrögð 20%
samsetning 20%
frumleiki 20%
útlit 10%
bragð 30%

 Keppt verður í fjórum hollum, fjórir í senn. Fyrsti hluti verður kl. 12:30 á laugardag, næsti kl. 16:30 þann dag, þriðji hluti kl. 12:30 á sunnudag og lokahollið kl. 15:30. Úrslit verða síðan tilkynnt upp úr kl. 16 á sunnudag. 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning