Stjórnin endurkjörin á aðalfundi
Aðalfundur félagsins Matur úr héraði - Local food var haldinn á í maí. Stjórn félagins var einróma endurkjörin á fundinum en fyrir henni fer Auðjón Guðmundsson, en aðrir í stjórn félagsins eru Hanna Dögg Maronsdóttir, Ingvar Már Gíslason, Júlíus Júlíusson og Sigurbjörn Sveinsson.
Á fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf auk þess sem rætt var um notkun á nýju merki félagsins sem einkennismerki fyrir matarkistuna Eyjafjörð. Þá var á fundinum fjallað um fyrirhugaða sýningu í Verkmenntaskólanum á Akureyri í október næstkomandi en þar mun matarmenning í anda Matar úr héraði “Local food” verða þungamiðjan. Unnið er þessa dagana að undirbúningi sýningarinnar og kynningu til væntanlegra þátttakenda.
Á aðalfundinum sagði Júlíus Júlíusson einnig frá ferð þriggja fulltrúa félagsins á sýninguna Slow food á Ítalíu nú í byrjun maímánaðar en ásamt honum fóru Friðrik V. Karlsson, eigandi veitingastaðarins Friðriks V. og Ólína Freysteinsdóttir, starfsmaður matvælaklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðar á sýninguna

