Fréttir

Sýnendur á MATUR-INN 2007 komnir á þriðja tuginn

maturinnÁ hverjum degi bætast nýir sýnendur í hóp þeirra sem taka þátt í sýningunni MATUR-INN 2007 sem haldin verður í Verkmenntaskólanum á Akureyri helgina 13. og 14. október næstkomandi. Félagið Matur úr héraði - Local food stendur fyrir sýningarhaldinu. Skráðir þátttakendur eru nú á þriðja tuginn og margir enn að undirbúa þátttöku. Enn er laust rými á sýningarsvæðinu enda er húsnæði Verkmenntaskólans til sýningarhalds mun hentugra en fyrr með tilkomu nýja fjölnotasalarins sem lagður verður undir sýninguna. Sýningarstjórn er mikið ánægjuefni hversu fjölbreytt sýnendaflóran er orðin nú þegar. Ekki hvað sýst að til liðs við okkur koma nú Skagfirðingar og Þingeyingar en svæðisbundin matarmenning hefur einmitt verið áhersluefni á þessum svæðum. Á sýningunni kynna starfsemi sína bæði kjöt- og fiskvinnslufyrirtæki, mjólkurvöruframleiðendur, grænmetistbændur, bjórframleiðendur, skelræktendur, veitingastaðir, heildsalar og þannig mætti endalaust telja. Í stuttu máli hafa eftirtaldir staðfest þátttöku:

Bautinn
Brynju-ís
Ektafiskur
Friðrik V
Fylgifiskar
Greifinn
Hagé
Holtselsís
Karólína
Kaldi
KEA hótel
Kjarnafæði
Matarkistan Skagafjörður
MS Akureyri
Norðlenska
Norðurskel
Pottar og prik
Purity Herbs
Reykjagulrætur
Strikið
Vífilfell
Þingeyska matarbúrið
 
Eins og áður segir er enn laust sýningarrými á MATUR-INN 2007. Þátttöku er hægt að skrá hjá Ólínu Freysteinsdóttur í síma.


Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning