Fréttir

Sýnendur stefna á sjöunda tuginn!

Nú er ljóst að MATURINN 2007 verður langstærsta sýning sem haldinn hefur verið norðan heiða og einungis er helguð mat og matarmenningu. Síðustu dagana hefur stöðugt bæst á sýnendalistann og eru sýnendur nú komnir yfir 60 talsins! Sýningin mun endurspegla mikla breidd í matarmenningunni á Norðurlandi því auk fjölda sýnenda af Eyjafjarðarsvæðinu verða mjög öflugir básar frá Þingeyingum og Skagfirðingum.

Enn er mögulegt fá inni á sýningunni en við hvetjum áhugasama sýnendur að hugsa og framkvæma strax ef þeir ætla að tryggja sér pláss. Laust er einnig á markaðnum fyrir þá sem vilja selja úr haustuppskerunni, sultur, ber, grænmeti eða hvað sem er.

Frekari upplýsingar um sýnendalista og fleira. (smella hér)



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning