Þjóðþekktir keppa í matreiðslu
Almennt - fimmtudagur 1.okt.09 21:47 - Lestrar 201
Á sýningunni MATUR-INN 2007 vakti matreiðslukeppni þjóðþekktra mikla athygli gesta. Sá liður verður að sjálfsögðu endurtekinn nú og verða keppendur fjórir. Keppnin hefst með kynningu keppenda kl. 13.15 á laugardag. Keppendur eru: Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður, Sigrún Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi, María Sigurðardóttir, leikhússtjóri og Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur.
Keppnisfyrirkomulag er óvissukarfa, þ.e. að keppendur fá hráefni afhent 15 mínútum áður en keppni hefst. Þeir hafa 1,5 klst. til að elda rétt fyrir 4 þar sem einn diskur fer í uppstillingu á sýningunni en þrír diskar fara til dómara.
Fjórir dómarar dæma keppnina, þ.e. (einn eldhúsdómari og þrír bragðdómrarar)
Vægi dóma:
eldamennska og vinnubrögð 30%
samsetning 10%
frumleiki 10%
útlit og áferð 25%
bragð 25%
Og nú verður fróðlegt að sjá hver fer í fótspor sigurvegarans fyrir tveimur árum en sá er Ágúst Ólafsson, forstöðumaður RÚV á Akureyri.

