Fréttir

Žrįinn Freyr "Matreišslumašur įrsins"

Lokakeppni Klúbbs matreiðslumeistara um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007 fór fram á sýningunni Matur-inn í Verkmenntaskólanum á Akeyri í dag. Tilkynnt var síðdegis að dómnefnd hefði úrskurðað Þráinn Frey Vigfússon, matreiðslumann á Grillinu Hótel Sögu, siguvegara keppninnar. Aðrir keppendur í úrslitakeppninni voru Ari Freyr Valdimarsson, Grillinu Hótel Sögu, Eyjólfur Gestur Ingólfsson, Iðjusölum, Þórarinn Eggertsson, Múlakaffi og Ægir Friðriksson, Grillinu Hótel Sögu.
Mikil aðsókn var að sýningunni í dag en þar kynna um 60 sýnendur bæði norðlenskan mat og matarmenningu. Sýningin verður opin kl. 11-17 á morgun.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskrįning