Fréttir

Vel heppnuð þátttaka í Vetrarhátíð í Reykjavík

Um liðna helgi tók félagið þátt í Vetrarhátíð í Reykjavík í samstarfi við Þingeyska matarbúrið, Matarkistuna Skagafjörð og norðlenska ferðaþjónustuaðila undir merkjum Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi. Ástæða þessa verkefnis er sú að Norðurland var að þessu sinni gestalandshluti á Vetrarhátíð og var þetta í annað skipti sem slíkt er gert. Yfirskriftin var Skíði, menning, matur og var þátttaka svæðismatarfélaganna svo sannarlega mikilsverð tenging í þessu samhengi.

Kynningin fór fram í Höfuðborgarstofu. Þar voru matarfélögin þrjú með sameiginlegan bás þar sem ýmsir gómsætir norðlenskir réttir voru í boði fyrir gesti og gangandi. Ferðaþjónustuaðilar buðu sérstaklega til sín starfsfólki ferðaskrifstofa á höfuðborgarsvæðinu á föstudeginum og á þeirri kynningu var norðlenskur matur ein grunnstoðin. Húsið var hins vegar opið almenningi bæði á föstudag og laugardag og samkvæmt nákvæmri rafrænni talningu litu um 7000 manns inn þessa tvo daga.
Óhætt er að segja að Norðurland hafi sett mark sitt á miðborgina því rauðum hjörtum var dreift víða, bæði í glugga og í barm miðborgargesta. Úti fyrir Höfuðborgarstofu voru íshjörtu skorin út í norðlenskan ís en listamaður í því verki var Hallgrímur Sigurðsson, yfirmatreiðsumaður hjá Friðriki V. Í matarbásnum var meðal annars boðið upp á rækjur, rúbrauð, sauðakjöt, þurrkað ærkjör, skyrdrykk, hrossakjöt, osta, reykta síld, kæfur, slátur og þannig mætti áfram telja. Kynningarefni um norðlenska matarmenningu og matarfélögin lá frammi.
Þessu öllu til viðbótar var fiskisúpa í boði hjá þeim Friðriki V. Karlssyni, matreiðslumanni, Júlíusi Júlíussyni, mataráhugamanni og Finnboga Marinóssyni, ljósmyndara, en þeir félagar kynntu bók sína Meistarinn og áhugamaðurinn sem út kom í haust. Þar leiða þeir Friðrik og Júlíus saman hesta sína í matreiðslu á fiski en ljósmyndaþátturinn var í höndum Finnboga.

Óhætt er að segja að allir sem að Vetrarhátíðarverkefninu komu hafi verið ánægðir og sérstaklega mikilsvert að allir hagsmunaaðilar á svæðinu í matarmenningu og ferðaþjónustu vinni saman með þessum hætti. 

 Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá kynningunni: 

vetrarhatid1

Gestirnir luku lofsorði á norðlenskan mat - enda full ástæða til.

 

vetrarhatid2
Jóhann Ólafur, verkefnisstjóri Matar úr Eyjafirði, í skrúðanum. Ólafur Jónsson, matreiðslumaður á Hólum í Hjaltadal útbýr krásirnar. 

vetrarhatid3
Friðrik V. Karlsson í ísbjarnarklóm!

 vetrarhatid4
Ferðaþjónustuaðilar bera saman bækur sínar og ræða við gesti.

 vetrarhatid5_01
Örtröð við básana. Hjörtun voru áberandi og brosið ekki síður á viðstöddum.

vetrarhatid6
Matarlegt er það!

vetrarhatid7
Gestur við bás þeirra Friðriks V, Júlíusar og Finnboga hefur eflaust hælt súpunni og bók þeirra félaga, enda ástæða til. 

vetrarhatid8
Íslistamaðurinn Hallgrímur Sigurðsson, yfirmatreiðslumaður hjá Friðriki V vakti mikla athygli úti fyrir höfuðsborgarstofu. Ekki á hverjum degi sem traujárn eru notuð utanhúss! Friðrik Valur fylgist með. 

vetrarhatid9
Friðrik Valur ræðir um norðlenska drykki og matargerð við boðsgesti á kynningunni á föstudag. Hér er skyrdrykkur frá MS á borðum, þrjár tegundir af Kalda frá Bruggsmiðjunni og að sjálfsögðu kók í gleri, sem fylgt hefur gosdrykkjaframleiðslunni á Akureyri mjög lengi. 

vetrarhatid91
Jóna Matthíasdótti, verkefnisstjóri, hjá Þingeyska matarbúrinu, fyllir á borðið. 

vetrarhadtid92
Guðrún Brynleifsdóttir, verkefnisstjóri Matarkistunnar Skagafjarðar, ræðir við gesti. 



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning