Vel heppnuð þátttaka í Vetrarhátíð í Reykjavík
Kynningin fór fram í Höfuðborgarstofu. Þar voru matarfélögin þrjú með
sameiginlegan bás þar sem ýmsir gómsætir norðlenskir réttir voru í boði
fyrir gesti og gangandi. Ferðaþjónustuaðilar buðu sérstaklega til sín
starfsfólki ferðaskrifstofa á höfuðborgarsvæðinu á föstudeginum og á
þeirri kynningu var norðlenskur matur ein grunnstoðin. Húsið var hins
vegar opið almenningi bæði á föstudag og laugardag og samkvæmt nákvæmri
rafrænni talningu litu um 7000 manns inn þessa tvo daga.
Óhætt er að segja að Norðurland hafi sett mark sitt á miðborgina því
rauðum hjörtum var dreift víða, bæði í glugga og í barm miðborgargesta.
Úti fyrir Höfuðborgarstofu voru íshjörtu skorin út í norðlenskan ís en
listamaður í því verki var Hallgrímur Sigurðsson, yfirmatreiðsumaður hjá Friðriki V. Í matarbásnum var meðal annars boðið upp á rækjur, rúbrauð,
sauðakjöt, þurrkað ærkjör, skyrdrykk, hrossakjöt, osta, reykta síld, kæfur,
slátur og þannig mætti áfram telja. Kynningarefni um norðlenska
matarmenningu og matarfélögin lá frammi.
Þessu öllu til viðbótar var fiskisúpa í boði hjá þeim Friðriki V. Karlssyni, matreiðslumanni, Júlíusi Júlíussyni, mataráhugamanni og Finnboga Marinóssyni, ljósmyndara, en þeir félagar kynntu bók sína Meistarinn og áhugamaðurinn sem út kom í haust. Þar leiða þeir Friðrik og Júlíus saman hesta sína í matreiðslu á fiski en ljósmyndaþátturinn var í höndum Finnboga.
Óhætt er að segja að allir sem að Vetrarhátíðarverkefninu komu hafi verið ánægðir og sérstaklega mikilsvert að allir hagsmunaaðilar á svæðinu í matarmenningu og ferðaþjónustu vinni saman með þessum hætti.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá kynningunni:
Gestirnir luku lofsorði á norðlenskan mat - enda full ástæða til.

Jóhann Ólafur, verkefnisstjóri Matar úr Eyjafirði, í skrúðanum. Ólafur Jónsson, matreiðslumaður á Hólum í Hjaltadal útbýr krásirnar.

Friðrik V. Karlsson í ísbjarnarklóm!

Ferðaþjónustuaðilar bera saman bækur sínar og ræða við gesti.

Örtröð við básana. Hjörtun voru áberandi og brosið ekki síður á viðstöddum.

Matarlegt er það!

Gestur við bás þeirra Friðriks V, Júlíusar og Finnboga hefur eflaust hælt súpunni og bók þeirra félaga, enda ástæða til.

Íslistamaðurinn Hallgrímur Sigurðsson, yfirmatreiðslumaður hjá Friðriki V vakti mikla athygli úti fyrir höfuðsborgarstofu. Ekki á hverjum degi sem traujárn eru notuð utanhúss! Friðrik Valur fylgist með.

Friðrik Valur ræðir um norðlenska drykki og matargerð við boðsgesti á kynningunni á föstudag. Hér er skyrdrykkur frá MS á borðum, þrjár tegundir af Kalda frá Bruggsmiðjunni og að sjálfsögðu kók í gleri, sem fylgt hefur gosdrykkjaframleiðslunni á Akureyri mjög lengi.

Jóna Matthíasdótti, verkefnisstjóri, hjá Þingeyska matarbúrinu, fyllir á borðið.
Guðrún Brynleifsdóttir, verkefnisstjóri Matarkistunnar Skagafjarðar, ræðir við gesti.

