Vetur kvaddur - sumri fagnað
Aðilar í félaginu Mat úr héraði blésu til sannkallaðrar sumarstemmningar í göngugötunni á Akureyri í dag í tilefni sumarkomunnar á morgun. Kjöti var brugðið á grillin, ís í boði, sem og sjávarréttasúpa, saltfiskréttir og margt fleira. Gestir streymdu til bæjarins vegna Andrésar Andar-leikanna og margir byrjuðu heimsóknina á því að fá gott í gogginn hjá eyfirskum matgæðingum. Og voru að sönnu hrifnir af framtakinu.

Bæði matarlegt og sumarlegt í göngugötunni.

Auðjón frá Kjarnafæði sker grillsneiðarnar.

Fiskisúpa frá Friðrik V féll í góðan jarðveg.

Ingvar Már frá Norðlenska og grillari Bautans gera klárt.

Þetta verðum við að smakka!

Fía í Brynju hafði varla undan að gefa smakk af Brynjuísnum.Hvað er sumarlegra?

Ýmislegt góðgæti var á bóðstólum frá Ektafiski.

