Fréttir

Yfir 10 þúsund gestir á MATUR-INN 2007

syningin_72Talið er að yfir 10 þúsund manns hafi lagt leið sína á sýninguna MATUR-INN 2007 sem haldin var í Verkmenntaskólanum á Akureyri um helgina og helguð varð norðlenskum mat og matarmenningu. Fyrir sýningunni stóð félagið Matur úr héraði – Local Food og tóku um 60 norðlenskir sýnendur þátt í henni. Sýning undir sama nafni var haldin fyrir tveimur árum en bæði sýnendafjöldi og aðsókn var tvöfalt meira í ár. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði sýninguna formlega á laugardag og lýsti yfir mikilli ánægju með það sem fyrir augu hans bar á sýningarsvæðinu.  Ýmsar keppnir og viðburðir fóru fram samhliða sýningunni og vöktu mikla athygli sýningargesta.

„Erum hæstánægð“
„Við getum ekki annað en verið í skýjunum með sýninguna. Aldrei áður hafa jafn margir norðlenskir aðilar sem koma að mat og matarmenningu komið saman í einum viðburði og allir eru hæstánægðir með hvernig til tókst. Allir lögðust á eitt að gera sýninguna sem veglegasta og faglegasta og við heyrðum glögglega á sýningargestum að þeim fannst mikið til koma. Markmiðið er að festa MATUR-INN sýninguna í sessi sem fastan lið annað hvert ár og viðtökurnar um helgina gefa okkur, samstarfi Norðlendinga á matvælasviðinu og þessu unga félagi að baki sýningunni, Matur úr héraði – Local Food, sannarlega byr í seglin,“ segir Júlíus Júlíusson, talsmaður sýningarinnar og stjórnarmaður í félaginu Matur úr héraði.

Meira um sýninguna: http://www.localfood.is/default/page/matur-inn_2007/

Myndir frá sýningunni:
syning1
Gestir skoða vörur í bás Norðlenska.

syning2
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, opnaði
sýninguna á laugardag og heilsaði upp á sýnendur. Hér er hann við
bás Kjarnafæðis.

syning3
Líf og fjör í Þingeyska matarbúrinu.

syning4
Þjóðþekktir einstaklingar uppteknir við matreiðsluna. Frá vinstri: Kristján Möller,
samgönguráðherra, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga
Capital og Ágúst Ólafsson, forstöðumaður RÚV á Akureyri.



Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning