Skáning félagsmanna og réttur
Skráning félagsmanna fer fram hér á síðunni. Árgjald félagsmanna innifelur eftirfarandi:
- merkið og leyfi til notkunar á því
- 1 atkvæði á aðalfundi
- forgangur á sýningar og viðburði sem félagið stendur að
- frétta- og upplýsingaflæði um aðra félaga
- aðgangur að póstlista félaga
Matur úr héraði - local food
starfsreglur um notkun merkis
1. Matur úr héraði - Local food merkið er merking sem nota á til að vekja athygli á eyfirskum matvælum og matseld.
2. Matur úr héraði - Local food merkingin er gæðastimpill sem felur í sér að hráefnið sé eyfirskt að uppruna, framleiðslan sé í Eyjafirði og matseldin sé einkennandi fyrir eyfirskt eldhús. Lykilor: uppruni, úrvinnsla og matreiðsla (hefðir og sérviska)
3. Merkið geta allir notað sem eru skráðir meðlimir félagsins Matur úr héraði - Local food.
4. Þegar sótt er um félagsaðild er einnig hægt að sækja um notkun á merkinu. Umsókninni þarf að fylgja lýsing á því hvernig nota á merkið. Þarf stjórn að samþykkja umsóknina.
5. Markvisst eftirlit verður ekki með notkun merkisins heldur er félögum treyst til að fylgja eftir starfsreglum um notkun merkiisins og samþykktum félagsins. Félögum er einnig treyst til þess að líta til hver með öðrum. Í samþykktum félagsins kemur fram að heimilt er að víkja aðilum úr félaginu gerist þeir sekiðr um misnotkun á merkinu.
Samþykktir félagsins
Matur úr héraði - Local food
1. .gr.
Félagið heitir Matur úr héraði-Local food.
2. gr.
Heimili félagsins er RHA/Matvælaklasi Borgir v/Norðurslóð 600 Akureyri og varnarþing þess er á Akureyri.
3. gr.
Markmið félagsins er að hefja á loft eyfirsk matvæli og eyfirskt eldhús
4. gr.
Markmiði sínu hyggst félagið ná með því að vinna að og fylgja eftir ákveðnum verkefnum. Þau eru m.a.
- Hönnun merkis undir slagorðinu „Matur úr héraði-Local food“. Merkið verði notað af veitingahúsum og matvælaframleiðendum og vísar það til eyfirskrar matargerðar og/eða í eyfirskan uppruna matvælanna.
- Fylgja eftir starfsreglum um notkun merkisins
- Markaðssetja verkefnið Matur úr héraði-Local food
- Tengja saman eyfirska matvælaframleiðendur og veitingamenn
- Tengja eyfirska eldhúsið við önnur norðlensk eldhús/íslensk eldhús
- Sýningar og viðburðir sem vekja athygli á eyfirskum matvælum og eldhúsi
5.gr.
Öllum sem starfa að matvælum í Eyjafirði með einhverjum hætti t.d. matvælafyrirtæki og veitingahús er heimilt að sækja um aðild að félaginu. Umsóknir fara fyrir stjórn sem tekur þær fyrir á næsta stjórnarfundi.
6. gr.
Rétt til setu á fundum félagsins hafa allir félagsmenn.
7.gr.
Heimilt er að víkja félögum úr félaginu ef þeir fylgja ekki eftir samþykktum félagsins og þeim starfsreglum sem mótaðar eru í tengslum við notkun á merkinu Matur úr héraði-Local food.
8. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum. Stjórnarmenn skulu kosnir til 1 árs í senn en stjórn velur sér formann. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir. Daglega umsjón félagsins annast formaður félagsins. Firmaritun félagsins er í höndum allrar stjórnar.
9. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. Til aðalfundar skal boða með viku fyrirvara og tryggum hætti. Afl atkvæða ræður úrslitum á aðalfundi nema annað sé sérstaklega tekið fram í samþykktum þessum.
10. gr.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
Skýrsla stjórnar
Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins
Umræður um skýrslu og reikninga
Lagabreytingar
Kosning formanns
Kosning stjórnar
Önnur mál
11. gr.
Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundum félagsins. Tillögum til lagabreytinga skal skila 10 dögum fyrir aðalfund til stjórnar og skal stjórn í fundarboði geta þess ef lagabreytingatillaga hefur komið fram.
Nái lagabreytingatillaga samþykki 2/3 hluta fundarmanna telst hún samþykkt.
12. gr. Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Hún tekur ákvarðanir um starfsemi og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum félagsins.
13. gr.
Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef minnst 3 stjórnarmenn sækja fund. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. Ef atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.
14. gr.
Stjórn félags er skylt að efna til almenns félagsfundar ef minnst 1/3 félagsmanna óska þess. Almennir fundir skulu auglýstir með tryggum hætti með minnst 10 daga fyrirvara.
15. gr.
Árgjald verði greitt til félagsins sem verður ákveðið á aðalfundi. Fjármögnun félagsins vegna skipulagðra atburða, kynningarefnis og umsjónar vefsetur skal fara fram með söfnun styrkja. Félaginu er þó heimilt að innheimta gjald af þátttakendum atburða sem félagið skipuleggur og skulu þau, í heild eða að hluta, standa undir kostnaði er til fellur við skipulagningu og framkvæmd atburðanna.
16. gr.
Verði hagnaður af starfsemi félagsins skal honum varið í samræmi við tilgang félagsins.
17. gr.
Ákvörðun um slit félagsins verður tekin á lögmætum félagsfundi með einföldum meirihluta. Á fundinum skal tekin ákvörðun um ráðstöfun eigna félagsins en miða skal við að eignum verði ráðstafað til aðila sem starfa í almannaþágu að sambærilegum markmiðum og lýst er í 3. gr..
Samþykktir þessar voru lagðar fyrir stofnfund félagsins Matur úr héraði-Local food sem haldinn var á Akureyri 29. maí 2006 og samþykktir þar.

