Í maí árið 2006 var stofnað félagið Matur úr héraði – „Local food“ og á stofnun þess rætur að rekja til starfs innan matvæla- og ferðaþjónustuklasa Vaxtarsamnings Eyjafjarðarsvæðis.
Félagið hefur að markmiði að hefja á loft eyfirsk matvæli og eyfirskt eldhús en í aðdraganda stofnunar félagsins tóku aðilar í matvælaiðnaði á Eyjafjarðarsvæðinu sameiginlega þátt í sýningunni Matur 2006 í Kópavogi.
Þótti sú þátttaka sýna og sanna árangur samvinnu innan greinarinnar á svæðisvísu. Við stofnun félagsins var meðal annars ákveðið að félagið efndi til samkeppni um hönnun merkis sem verði notað af veitingahúsum og matvælaframleiðendum og vísi til eyfirskrar matargerðar og í eyfirskan uppruna matvælanna. Samkeppninni lauk á haustmánuðum 2006 þegar niðurstöður verðlaunasamkeppni voru tilkynntar. Merkið er hannað af Guðrúnu Elfu Skírnisdóttur og er því ætlað að verða einkenni og gæðastimpill í víðum skilningi fyrir matvælaframleiðslu og matarmenningu á Eyjafjarðarsvæðinu.
Megintilgangur félagsins Matur úr héraði – „Local food“ er að vinna að markaðssetningu á verkefninu í heild og eflingu samstarfs þeirra aðila á Eyjafjarðarsvæðinu sem koma að matvælameðhöndlun á einhvern hátt, tengja saman eyfirska matvælaframleiðendur og veitingamenn, taka þátt í sýningum og viðburðum þar sem tækifæri gefast á að kynna eyfirsk matvæli og eldhús og þannig mætti telja. Með tilkomu nýja merkisins opnast öllum aðilum í matvælagreininni á svæðinu möguleiki á að einkenna vörur sínar á skýran hátt upprunanum á Eyjafjarðarsvæðinu. Slíka tengingu má telja nýja af nálinni hér á landi.
Aðild að félaginu er heimil öllum þeim sem starfa að matvælum í Eyjafirði með einhverjum hætti, t.d. er matvælafyrirtækjum og veitingahúsum heimil aðild.
Skáning félagsmanna og réttur
Skráning félagsmanna fer fram hér á síðunni. Árgjald félagsmanna innifelur eftirfarandi:
- merkið og leyfi til notkunar á því
- 1 atkvæði á aðalfundi
- forgangur á sýningar og viðburði sem félagið stendur að
- frétta- og upplýsingaflæði um aðra félaga
- aðgangur að póstlista félaga
Stjórn
Stjórn félagsins skipa starfsárið 2009-2010:
Friðrik V. Karlsson (Friðrik V)
Ingvar Már Gíslason (Norðlenska)
Sigurbjörn Sveinsson (Hótel KEA)

